top of page

Acerca de

manifestation-event cover 820x360px.jpg

MANIFESTATION MEÐ TÓNHEILUN & CACAO

FIMMTUDAGINN 19. MARS KL. 19.30-21 Í REYR STUDIO

Komdu að manifesta með okkur þar sem við leiðum þig áfram með dáleiðandi tónferðalagi og könnum kraft tónanna, hjartans og ásetningsins inn í heim drauma og markmiða þinna. Þar sem við hjálpum þér að finna meiri skýrleika og hvað það er sem þú vilt manifesta inn í líf þitt.

Saman fléttum við ásetning, manifestation, hugleiðslu, tónheilun og meðvitaða sköpun til að opna á flæði orkunnar og leyfa þannig draumum þínum að taka á sig form í veruleikanum.

Stundin hefst á Hjartaopnandi Cacao 100% hreinu súkkulaði frá Perú ❤

Leyfðu þér að stíga inn í heilagt rými með okkur þar sem hljóð og orka sameinast í töfrandi upplifun. Í þessari tónferð verður þú leitt í gegnum mjúka tónheilun sem hjálpar þér að tengjast hjarta þínu, djúpum draumum og undirmeðvitund svo hún geti aðlagast nýjum áformum og orku framtíðar þinnar.

Við notum flæði og tíðni tónanna til að opna á kraft orkunnar og vekja sköpunarkraft þinn til lífs. Með leiðbeinandi hljóðum, ljósi og nærandi orku sköpum við rými fyrir losun, endurnýjun og innri frið til að öðlast meiri skýrleika og flæði inn í líf þitt.

Þegar hjartað opnast og hugurinn kemst í þeta ástand verður undirmeðvitundin móttækilegri og þú getur stillt þig inn á nýja drauma, nýjar leiðir og nýja veröld sem þig langar að skapa.

Þú þarft ekki að vera með neitt á hreinu þegar þú kemur, bara leyfa stundinni að leiða þig áfram í átt að þínu innsæi, meðvitund og manifestation. Láttu tónana og orkuna leiða þig inn í nýja tíðni, nýtt jafnvægi og nýja byrjun.

Komdu og vertu með okkur í opnandi og flæðandi orku þar sem við aðstoðum þig við að koma draumum þínum í birtingu.

Komdu í þægilegum fatnaði, við erum með augnhvílur en ef þú átt þína uppáhalds er gott að taka hana me.

Verð: 7500 kr

Við hlökkum til að sjá þig Kolbrún og Danni.

SKRÁÐU ÞIG MEÐ ÞVÍ AÐ GREIÐA HÉR MEÐ ÞESSUM PAYLINK

bottom of page