top of page

Acerca de

-_montrunamskeid-event.jpg

MÖNTRUSÖNGUR MEÐ YOGA NIDRA - CACAO & TÓNHEILUN
​4 VIKUR OG HEFST 6. OKT 2026 Í REYR STUDIO

4 skipti af nærandi samveru, við gerum við æfingar sem hækka orkutíðnina þína, veita henni jafnvægi og róa um leið taugakerfið þitt. Æfingarnar hjálpa þér að losa þig við neikvæða og/eða staðnaða orku í efnis-, tilfinninga- og orkulíkama með því að syngja möntrur, losa um hálsstöðina, hugleiða og fá tónheilun.

 

Allir tímar byrja á hjartaopnandi cacao og enda á yoga nidra og tónheilun.

​

Við eflum orkuflæðið með æfingum fyrir hálsstöðina með söng, með því að kyrja saman og hugleiða, með orkulækningum, mudrum, heilun handa, tapping og fleiri áhrifaríkum æfingum til að hreyfa við orkustöðvunum og róa taugakerfið þitt.

​

Þú lærir að tengjast orkustöðvum og líkama þínum betur í gegnum æfingar fyrir hálsstöðina þína. Hálsstöðin er upphafið að andlegri tengingu og hjálpar okkur við tjáningu og sköpunarkraft.

​

Lögð er áhersla á tengingu við líkama með hugleiðslu, yoga nidra sem aðstoðar þig við líkamsvitund og núvitund. Streita og áföll leiða til þess að hugur og líkami aftengjast og með æfingunum sem við munum leggja áherslu á þann mikilvæga þátt að tengja huga og líkama með yoga nidra, líkams- og núvitund.

​

Þú lærir að efla lífsorkuna (prana) innra með þér með því að kyrja og syngja með okkur, lærir um möntrur og hvað þær eru heilandi fyrir líkama og sál og færð að finna það á eigin skinni.

 

Boðið er upp á ljúffengt hjartaopnandi cacao í öllum tímum.

​

Komdu í öfluga sjálfsheilun með Kolbrúnu og Danna.

Þriðjudaga í október frá kl. 19.30-21.15 í Reyr Studio Fiskislóð 31B

​Hefst 6. október 2026


Verð: 22.900 kr

 

Kennarar eru Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir heilari, jógakennari og tónheilari & Daníel Þorsteinsson er tónlistarmaður og tónheilari.

​

SKRÁÐU ÞIG MEÐ ÞVÍ AРHAFA SAMBAND HÉR

Ath. skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða námskeiðið að fullu.

​

UMMÆLI:

​

“Kolbrún og Danni búa til öruggt umhverfi þar sem gleði, traust og samkennd er ríkjandi. Tónlistin og söngurinn töfra fram einstakt andrúmsloft þar sem ég slakaði fullkomlega af og ég fann mínar dýpstu rætur. Ég fór heim með skýrari tilfinningu fyrir því hver ég er og mig langar að nota mína rödd til að tjá það.” - Úlla

 

“Allt upp á 10 á þessu námskeiði, fór yfirvegaður og endurnærður heim eftir hvert skipti, mæli með” - Bragi

 

“Takk kærlega fyrir frábært námskeið og takk fyrir að hjálpa mér að sækja söngin innra með mér ❤️” - Helga

bottom of page