Acerca de

BLUE LOTUS TE SEREMÓNÍA - YOGA NIDRA - TÓNHEILUN
ÞRIÐJUDAGINN 29. SEPT KL. 19.30-21 Í REYR STUDIO
Yoga Nidra · Djúp slökun & Tónferðalag🌙💙
Þér er boðið í helga og umbreytandi stund þar sem við sameinum forna visku Blue Lotus blómsins, djúpa slökun Yoga Nidra hugleiðslu.
Blue Lotus hefur í þúsundir ára verið notað í helgisiðum fyrir ró, hjartaopnun, innsæi og draumavinnu. Í þessari te-seremóníu munum við drekka Blue Lotus te með fullri meðvitund og leyfa líkama og huga að mýkjast inn í djúpt slökunarástand.
✨ Yoga Nidra hugleiðsla leiðir þig í ástand milli vöku og svefns, þar sem taugakerfið endurstillist, undirmeðvitundin opnast og hugurinn verður móttækilegur fyrir innsæi og heilun.
🎶Mjúkt tónferðalag sem aðstoðar þig við að ná enn betri slökun inn í þessa stund.
Þessi stund er fyrir þig ef þú:
-
vilt djúpa hvíld og innri ró
-
vilt tengjast innsæi þínu og draumaheimi
-
vilt skapa nærandi tíma fyrir sjálfa/n þig
Þú mátt búast við:
-
Te-seremóníu með Blue Lotus
-
Leiddri Yoga Nidra hugleiðslu og draumkenndri tónheilun
-
Öruggu, hlýju og nærandi rými
Komdu í þægilegum fatnaði, við erum með augnhvílur en ef þú átt þína uppáhalds er gott að taka hana með & vatnsbrúsa.
Verð: 6900 kr
Við hlökkum til að sjá þig Kolbrún og Danni.
SKRÁÐU ÞIG MEÐ ÞVÍ AÐ GREIÐA HÉR MEÐ ÞESSUM PAYLINK