HEILUN - ORKUMEÐFERÐ
Meðferðin býður upp á heilun og samtal þar sem við, ég og þú, aðstoðum orkulíkamann, efnislíkamann, tilfinningalíkamann og undirmeðvitundina að losa um staðnaða orku sem myndast vegna áfalla og streitu daglegs lífs. Í heiluninni nota ég blandaða tækni heilunar í takt við það sem þú þarft á að halda. Ég nota m.a. Cranio Sacral Therapy (höfuðbeina- og spjaldhryggjameðferð) Reiki heilun, Access bars og Curandero hjartaheilun til að aðstoða þig við að heila sjálfan þig. Í meðferðinni eigum við einnig samtal sem er mikilvægt til að aðstoða þig við að losa um staðnaða orku sem og endurstillingu undirmeðvitundar þinnar.
Einnig er hægt að biðja um þá heilun sem kallar á þig hverju sinni ef þú veist hvað þú þarft.
Þú ert þinn eigin heilari.
Ég er því miður í veikindaleyfi ❤️
Ef þú vilt fara á biðlista og fá boð þegar ég fer aftur á kreik máttu senda mér tölvupóst hér ❤️
Þú getur valið um 60 eða 90 mínútur (mæli með 90 mínútum fyrir þessa tíma) í ró og slökun í þægilegu umhverfi.
Verð: Dagtími frá kl. 9-15.30, 60 mín 19.000 kr - 90 mín 25.000 kr tíminn
Eftirmiðdagstími frá 16.00-20.00, 60 mín 22.000 kr - 90 mín 29.000 kr tíminn
verð með hjartaopnandi cacao +1000 kr, einungis í boði fyrir 90 mín tíma
