top of page

Langar þig að taka sjálfsvinnuna föstum tökum?

Fá aðstoð við að ná betri tökum á sjálfsvinnunni og kafa dýpra með mér

12 mánaða námskeið

Langar þig að leyfa þér að blómstra og lifa lífinu lifandi. Vera sátt/ur í eigin skinni og upplifa að þér séu allir vegir færir.  Hjá mér lærirðu að breyta hugarfari þínu, þjálfa þig í að vera til staðar fyrir þig, efla sjálfstraust þitt og skapa líf sem nærir þig og þína vellíðan.

Ég leiði þig áfram á sjálfsvinnu með 12 mánaða þjálfun sem byggir á sjálfstyrkingu, hugarfarsbreytingu, núvitund, bættum samskiptum, aukinni gleði og ánægju með líf þitt. Námskeiðið er fullt af fróðleik , verkefnum, reynslusögum og æfingum sem hjálpa þér að vera þú. Í hverjum mánuði eru 60 mínútna einkatímar með Kolbrúnu og aðgangur að efni hvers mánaðar fyrir sig. Innifalið eru 11 kaflar af efni og 12 einkatímar.

 

Er komið að þér að setja andlega heilsu þína í fyrsta sæti?

Finnst þér þú …

Neikvæð/ur

Týnd/ur með sjálfa eða sjálfan þig

Eiga erfið samskipti eða vera erfið/ur í samskiptum

Ofhugsa

Rífa þig niður

Vera með lágt sjálfsmat

Ekki geta staðið með þér

Efast um þig

Ekki geta tjáð tilfinningar þínar

Óánægð/ur í vinnu

Ekki vera nægilega frjáls

Ekki vera á þeim stað sem þú vilt vera

Ekki lifa drauma þína

 

Eða langar þig bara einfaldlega til þess að auka við sjálfstraust þitt, losna við sjálfsefann og leyfa þér að  líða betur, lifa í vellíðan og fá aukin verkfæri til þess?

 

Ég býð upp á markvisst námskeið sem fer fram í gegnum netið og/eða í eigin persónu, einkatímar eru á google meet en ef þú ert stödd/staddur á höfuðborgarsvæðinu getum við líka hist í eigin persónu í einkatímum. Þú færð aðgang að vefefni sem er stútfullt af mikilvægum og uppbyggjandi fróðleik byggt á jákvæðri sálfræði, jógafræðum, núvitund, ásamt ýmsu öðru spennandi efni. Ég deili svo með þér hvernig ég hef nýtt þennan fróðleik fyrir mig og mitt líf.

 

Þú færð einn mánuði í einu til að vinna með og gerir þetta á þínum hraða, við hittumst svo mánaðarlega í 60 mínútna einkatíma þar sem við förum dýpra í skilning, verkefni og þínar upplifanir.

 

Eftir 12 mánaða þjálfun muntu sjá lífið í betra ljósi og ástæðan fyrir því að við tökum okkur góðan tíma í þetta er að við höfum burðast með hugarástand okkar í fjölda ára og það tekur tíma að tileinka sér nýja hugsunarhætti og hegðunarmynstur.

Mánaðarleg greiðsla er 18.900 kr en hægt er að staðgreiða og fá afslátt af heildarverði

flest stéttarfélög greiða námskeiðið niður.

Kíktu á verðskrá

Er ekki komið að því að líða betur og lifa í sátt og hugarró? 

Hafðu samband með því að senda mér tölvupóst hér eða ýta á hnappinn fyrir neðan ef þig langar að vita meira og ef þig langar að skrá þig!

Þú velur hvort að tíminn fer fram

í gegnum tölvu og þú getur verið

hvar sem er í heiminum

eða​ í eigin persónu í Síðumúla 15, 108 Rvk.

20220901_115047.jpg
bottom of page